-
Hæ hæ, takk fyrir komina um daginn það var mjög gaman að fá ykkur í heimsókn, Hauki veitir ekki af að leika við fleiri en mömmu sína. Kv. I og coIngibjörg Ásta Sigurðardóttir|0|12.3.2008 12:45:12
-
HæHæ:D Langaði bara að kvitta fyrir innlitið ;) gaman að vita að þið séuð með síðu. en sé að það er svolítið síðan hun var uppfærð.. ? Kveðja Frá Siggu gömlu pössunarpíu :DSigga Kristín|9.3.2008 01:46:12
hæhæ,vá hvað þið eru búin að stækka,við sáum ykkur þegar þið voru ný fædd.Bið að heilsa mömmu. kv.Mayflor og co.Katrín Nicola og Jónas | 0 | 31.10.2007 01:14:08 #
Tilkynning
Nú hafa mamma og pabbi ákveðið að gera smá breytingar og með smá hjálp ætlum við að láta sameina síðurnar okkar og gera að einni flottri "systkinasíðu" Með því ætti að vera auðveldara að fylgjast með okkur öllum þremur, þá getum við líka öll fengið kveðjur í gestabókina og komist hjá afbrýðisemi
Með þessum breytingum ætti líka að vera auðveldara fyrir gamla settið að uppfæra vefdagbók og myndaalbúm en eins og flestum er kunnugt þá hefur það ekki alveg gengið sem skyldi
Við ætlum svo að hafa þá síðu læsta vegna þess að því miður er ekki allt fólk heiðarlegt
En við munum að sjálfsögðu láta alla ættingja og vini fá lykilorðið með ánægju, og hvetjum fólk til þess að óska eftir aðgangi ef það hefur gleymst að gefa upp lykilorð til einhverra.
Nýjar myndir eru komnar inn fyrir maí, júní, júlí og eitthvað í ágúst og von er á fleiri ágústmyndum fljótlega. Mamma ætlar svo að reyna að koma með einhverjar fréttir af okkur grísalingunum helst á næstu dögum.
Biðjum að heilsa í bili. Helga, Ívar og Gabríel.
-
Vanta nýja myndirmaggi og sigga|21.8.2007 21:46:49
-
hæ Helga Júlíana mín ósköp gaman að hitta þig bráðum fer amma að sjá þig meyra þegar amma fjytur í bæinn kannski á næsta ári Bless elskan mín hafðu það gott munda ammamunda amma|7.8.2007 13:38:49
-
Jæja það eru hér líka gamla frétti,er pennahöndin nokkru brottin eða í sumarfríið.Afi bið að heilsa kyss.Maggi ,Sigga.|26.7.2007 21:05:40
-
Hæ.hæ og blessMaggi ,Sigga.|22.7.2007 19:02:22
Þessi vika er búin að vera nokkuð viðburðarík. Þann 26. júní fór ég í afmæli til Skírnis vinar míns. Birta frænka var hérna hjá okkur part úr degi þrjá daga í röð því Tinna, amma og afi voru öll að vinna. Það var voða gaman, við erum svo góðar vinkonur og alltaf eitthvað að bralla saman
. Það kemur stundum fyrir ef við erum vel fyrir kallaðar að hann Ívar fái að vera með okkur
Svo fórum við öll saman ég Ívar og Birta með Helgu ömmu til Skagastrandar á föstudaginn í heimsókn. Á laugardaginn var ég að hjóla og leika mér úti, kíkti örstutt til Helgu ömmu og Tryggva afa og fór svo heim með mömmu til að hafa til hádegismat og taka til útilegudótið okkar og fleira því hann Gunni sem býr hérna við hliðina á okkur bauð okkur sumarbústaðinn sinn að láni og við ákváðum að þiggja gott boð
Birta trítlaði yfir til okkar og lék með mér og fékk sér súpu með okkur í hádeginu, amma og afi kíktu aðeins við og við krakkarnir lékum úti í góða veðrinu. Svo var mamma búin að gera allt klárt þegar pabbi var búinn að vinna og þá lögðum við af stað í bústaðinn hans Gunna í sveitinni hans. Þar gistum við í nótt, það var frábært veður og gaman að hlaupa um í skóginum og leika sér þar í kring
Svo grillaði pabbi og við fengum að vaka ansi lengi, klukkan var líka að verða 10 þegar ég skreið framúr í morgun
Þegar við komum heim í dag og búið var að ganga frá öllu úr bílnum þá hjóluðum við Ívar niður á Ægisstíg og mamma skrölti á eftir okkur. Þar lentum við í þessari fínu veislu... Hlín frænka var í heimsókn með krakkana sína og þar var lambalæri og fínerí á borðum. Okkur var boðið að borða með og svo var ákveðið að skreppa í sund í Varmahlíð, það er alltaf fjör
Svo fengum við okkur ís á eftir og svo heim í grill hjá pabba. Þetta er allavega eitthvað brot af því sem ég er búin að vera að gera svona síðustu vikuna eða svo, og greinilega alltaf nóg að gera hjá mér ekki satt.
HALLÓ ALLIR SAMAN !!!
Þá er skvísan komin í sumarfrí. Mamma ákvað að hafa mig bara í leikskólanum út maí af því hún er nú hvort sem er heima. Enda fínt að fá eitt langt og gott sumarfrí áður en skólinn byrjar, ójá skvísan er orðin svona stór hvort sem þið trúið því eða ekki. Nú eru liðnar tvær vikur af sumarfríinu og það er bara búið að vera nokkuð gott. Búið að vera nóg að gera, í dag fór ég í sund með mömmu, pabba, Ívari, Gabríel og Sigga frænda. Það var svaka stuð og æðislegt veður. Pabbi grillaði svo þegar við komum heim og á meðan hjólaði ég og lék mér úti í góða veðrinu. Það er sko óhætt að segja að maður sé orðinn vel útitekinn, enda búið að vera nokkuð sólríkt upp á síðkastið. Vonandi verður nú gott veður á morgun, á sjálfum þjóðhátíðardeginum. Við ætlum bara að hafa þetta stuttt í þetta skiptið en skrifum meira fljótlega.
Hæhæ elsku Helga mín... guð hvað maður saknar ykkar... það liggur við að maður fer bara að gráta þegar maður er að skoða myndir af þér... :( þú ert búin að stækka svo mikið... sakna þín rosalega mikið. Ástarkveðja frá Ólafsvík... ÁsdísÁsdís | 0 | 13.6.2007 15:26:47 #
-
hæhæ Besta vinkona Gaman væri að hitta þig þú ert svo skemmtileg vinkona koss og knús Birta LífTinna Ýr Tryggvadóttir|0|29.5.2007 20:07:02
-
Hæ,hæ pæ... Til hamingju með hana gömlu konuna. Kveðja Sigga amma og Maggi afiMagnús Gunnlaugsson.|11.5.2007 00:04:06
-
Hæhæ pæ, við vorum að skoða siðuna þina og kvittum aðvitað fyrir komunni, biðum alltaf spenntar eftir nyjum myndum hehe :) hittumst hress kv. Birta Lif og TinnaTinna Ýr Tryggvadóttir|0|23.4.2007 11:59:18
-
hæhæ sæta stelpa.bara að kvitta fyrir innlitið:) gleðilega páska.........bæjó Hávarður Máni og mamma:)Hilma Dögg Indriðadóttir|0|4.4.2007 20:37:34
Hæ hæ elsku Flottar myndir af þér elsku dúllan mín.Ætlar mamma þín ekki að setja inn fleiri myndir????.Hittumst hressar og kátar á morgun þín Helga amma.Helga | 0 | 29.3.2007 23:40:24 #
Við Ívar fórum með pabba í fjöruferð á fimmtudaginn við löbbuðum ótrúlega langt, vorum u.þ.b. 1 1/2 klst á rölti
. Þar sáum við sko ýmislegt, t.d. krossfiska, heila fiskbeinagrind, hauskúpu af fugli og fullt af skeljum og steinum. Um kvöldið var ég svo þreytt að ég steinsofnaði um leið og ég lagðist á koddann enda var þetta langur göngutúr. Það var rugldagur í leikskólanum á föstudaginn. Þá fór ég í sitthvorn sokkinn og náttföt, svo var ég með brók á hausnum
. Svona rugldagar eru alltaf svolítið skemmtilegir. Þá fáum við svo skrítinn mat í leikskólanum. T.d. það sem annars væri í kaffitímanum fáum í morgunmat, morgunverðinn í hádeginu og svo hádegisverðinn í kaffinu. Mamma kom heim í gærkvöld og mikið var gott að fá hana aftur við vorum búnar að sakna hvor annarar svo mikið. Það hefur snjóað svolítið mikið hérna hjá okkur og við Ívar fórum út að leika okkur í snjónum eftir hádegið í dag. Þá vorum við búin að horfa á morgunsjónvarpið og borða fiskinn sem hann Björgvin veiddi og gaf okkur og pabbi sauð. En hún mamma svaf það af sér, vaknaði bara þegar við vorum nýkomin út. Sennilega var hún þreytt eftir langt ferðalag. Svo þegar hún var vöknuð og búin að borða morgunmatinn fór hún að kíkja út og sá þá bara einn haus standa upp úr ruslatunnunni. Hún er nefnilega tæmd á föstudögum og okkur systkinunum fannst hún alveg passlega stór til þess að loka hvort annað þar inni. Pabbi tók myndir af okkur án þess að við yrðum þess vör og mamma bað okkur svo vinsamlegast um að finna okkur eitthvað annað að gera. Hún virtist ekki eins hrifin af þessum leik og við, hmmm skrítið
. Nú svo kíktum við í smá heimsókn til Helgu ömmu og Tryggva afa, tókum með okkur krækiberjahlaupið hennar mömmu handa ömmu og afa.
Það er sko óhætt að segja að það sé nóg að gera hjá mér. Eða hvað finnst ykkur
?
En bið að heilsa bæ bæ.
hæ hæ elsku prinsessan mín! Ég frétti að þið hafið farið í fjöruferð í dag. Mamma saknar þín ósköp mikið. En við sjáumst nú á laugardaginn krúttið mitt. Knús og kossar, mamma.María Magnúsdóttir | 0 | 15.3.2007 18:58:02 #
Já nú erum við Ívar og pabbi bara ein heima í kotinu og auðvitað hann Berti líka. Mamma og Gabríel fóru austur á Höfn, en þau koma aftur heim um helgina. Um síðustu helgi vorum við Ívar Elí hjá Mása pabba okkar, hann fór með okkur til Reykjavíkur. Þar gerðum við ýmislegt skemmtilegt, til dæmis fórum við í húsdýragarðinn. Og að sjálfsögðu fannst okkur það skemmtilegt. Á miðvikudaginn í síðustu viku fór ég líka með Ívari, Tinnu og Birtu á Kardemommubæinn og skemmtum okkur konunglega.
Ætli við höfum þetta ekki bara í styttri kantinum núna.
Bestu kveðjur,
Helga Júlíana.





